Samkvæmt 4. gr. laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun ber endurskoðunar-fyrirtækjum að hafa formlegt gæðakerfi til að tryggja gæði endurskoðunarinnar og gæði starfa endurskoðanda. Formlegt gæðakerfi skal skv. 18. gr. sömu laga meðal annars innihalda reglur um ábyrgð stjórnenda á gæðum endurskoðunar, viðeigandi siðareglur, reglur um samþykki og áframhaldandi samþykki viðskiptavina og endurskoðunarverkefna, reglur um ráðningu starfsfólks í endurskoðunarteymi, reglur um framkvæmd endurskoðunar og reglur um eftirfylgni og skráningu gæðakerfis.
Gæðaeftirlitskerfi félagsins er sett upp í samræmi við alþjóðlegan staðal um gæðastjórnun innan endurskoðunarstofa ( e. International Standard on Quality Control 1, ISQC 1). Kerfið tekur einnig mið af siðareglum endurskoðenda (IFAC Code of Ethics) sem og alþjóðlegum staðli um gæðastjórnun í verkefnum (International Standard on Auditing, ISA 220). Gæðaeftirlitskerfið inniheldur þá meginþætti sem gæðaeftirlitskerfi eiga að innihalda samkvæmt 18.gr laga nr. 94/2019 og samkvæmt ISQC 1 en þeir eru eftirfarandi:
· Ábyrgð stjórnenda á gæðamálum
· Siðferðilegar kröfur, þar með talið óhæðiskröfur
· Samþykki nýrra viðskiptavina og verkefna ásamt áframhaldandi viðskiptasambanda
· Mannauðsmál
· Framkvæmd endurskoðunar einstakra verkefna
· Reglur um eftirfylgni og skráningu gæðakerfis